Aldrei rífast við konu sem les......

Hjón í sumarfríi fóru í bústað á Þingvallavatni. Eiginmanninum fannst best að veiða við sólarupprás. Konunni fannst gaman að lesa. Einn morgun snýr eiginmaðurinn aftur eftir nokkurra klukkustunda veiðar og ákveður að leggja sig. Þó konan þekki ekki vel til á Þingvöllum ákveður hún að fara á bátnum og sigla út á vatnið. Hún siglir stutta vegalengd út á vatnið, setur út akkerið og kemur sér vel fyrir og fer að lesa bók. Stuttu seinna kemur veiðivörður siglandi að henni á bát sínum. "Góðan daginn frú, hvað ert þú að gera?" spyr hann. "Ég er að lesa bók" svarar hún (og hugsar með sér hvort það sé ekki augljóst!). "Þú ert á lokuðu veiðisvæði" segir vörðurinn. "Fyrirgefðu en ég er ekki að veiða, ég er að lesa" segir hún. "Já" svarar hann, "En þú ert með allar græjur, hvað veit ég nema að þú farir að veiða eftir skamma stund. Ég verð að fá þig í land svo ég geti gert skýrslu um þetta". "Ef þú gerir það þá verð ég að kæra þig fyrir nauðgun!" svarar hún þá. "En ég hef ekki snert þig " segir vörðurinn forviða. "Það er rétt en þú hefur allar græjur og hvað veit ég nema að þú byrjir eftir skamma stund". "Hafðu það gott í dag frú" sagði vörðurinn og sigldi á brott.

Boðskapur sögunnar: Aldrei rífast við konu sem les. Það er mjög líklegt að hún geti líka hugsað !!

kv. Freyr


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Hver hefði trúað því að hann Freyr yrði svona mikið karlrembusvín!!

Annars verð ég að fá að lýsa yfir óánægju minni með ykkur árg. 1963! Greinilega fullt af fólki sem skoðar síðuna en kommentar aldrei á neitt! Hvernig væri að leyfa okkur að sjá smá virkni hérna!

Heiða B. Heiðars, 19.3.2007 kl. 16:06

2 identicon

Tek undir með Heiðu! það vantar svolítið að fólk taki þátt hér, komi t.d. með sögu af einhverjum gömul fyndnum  "mómentum" úr skólanum, við vorum nú ekki alveg alsaklaus á þessum árum eða hvað? 

Óli Ingibers (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 23:55

3 identicon

GÖMLUM mómentum

Óli Ingibers (IP-tala skráð) 20.3.2007 kl. 23:57

4 Smámynd: Heiða B. Heiðars

Óli minn... getur vel verið að þú hafir verið villingur. En ég var alsaklaus

Heiða B. Heiðars, 23.3.2007 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband