21.3.2007 | 08:38
Ljóskubrandari
Blindur maður villist inn á kvennabar, finnur sér stól við barborðið og pantar sér í glas. Þegar hann er búinn að sitja nokkra stund kallar hann í barþjóninn: - Heyrðu, á ég að segja þér ljóskubrandara? Á sömu stundu dettur allt í dúnalogn á barnum, þar til konan við hlið blinda mannsins segir við hann með lágri, dimmri rödd: - "Áður en þú segir þennan brandara, góði minn, þá held ég að það sé réttast - af því að þú ert nú blindur - að ég fræði þig um fáein atriði:
1. Barþjónninn er ljóshærð kona. 2. Útkastarinn er ljóshærð kona. 3. Ég er 1,85 á hæð, 100 kíló og er með svarta beltið í karate. .. Og ég er ljóshærð. 4. Konan við hliðina á mér er ljóshærð og er Íslandsmeistari í lyftingum. 5. Konan sem situr hinum megin við þig er ljóshærð og er slandsmeistari í vaxtarrækt.
Hugsaðu þig nú vel um, vinur. Langar þig enn að segja þennan brandara þinn?" Blindi maðurinn hugsar sig um andartak, hristir svo höfuðið og segir:
"Nei, ætli það. Ekki ef ég þarf svo að útskýra hann fimm sinnum."
Kv. Gummi
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.