16.4.2007 | 09:44
Í grenndinni veit ég um vin sem ég á
Í grenndinni veit ég um vin sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer,
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
"Ég hringi á morgun", ég hugsaði þá,
"svo hug minn fái hann skilið",
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd,
gleymd ekki hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send,
er sannur og einlægur vinur.
kv. Skjöldur
Athugasemdir
Skjöldur; samdir þú ljóðið?
Heiða B. Heiðars, 16.4.2007 kl. 23:49
Nei því miður, því glaður vildi ég hafa þessa hæfileika. Fannst þetta bara passa til okkar allra sem erum í þessu lífskapphlaupi og þykjumst ekki hafa tíma fyrir þá sem við elskum og þykir vænt um. Og erum "alltaf" af fara að koma í heimsókn.
Held að þetta sé bandarískt ljóð og er þýtt af Sig. Jónssyni tannlækni.
Skjöldur V. Árnason (IP-tala skráð) 17.4.2007 kl. 16:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.